mobile navigation trigger mobile search trigger
02.01.2023

Hreinsun eftir áramót

Mikið rusl fellur til um áramót þegar tonnum af flugeldum er skotið á loft. Nokkuð mikið er um það að tómir flugeldakassar, spýtur og prik liggi á víð og dreif um bæinn í upphafi árs og biðlum við til íbúa og fyrirtækja á svæðinu að huga að nærumhverfi sínu og taka til eftir áramótagleðina.

Hreinsun eftir áramót

Íbúar geta safnað afgöngum saman við lóðarmörk sín og starfsfólk þjónustumiðstöðva koma því svo í förgun. 

Tökum höndum saman og hreinsum upp eftir áramótin. Það er eins í þessu eins og svo mörgu öðru að margar hendur vinna létt verk. 

Frétta og viðburðayfirlit