mobile navigation trigger mobile search trigger
12.02.2015

Íbúafundur á Norðfirði um ofanflóðavarnir

Íbúafundurinn verður í Safnahúsinu í Neskaupstað, í dag kl. 20:00.  Kynntar verða fyrirhugaðar framkvæmdir vegna ofanflóðavarna undir Urðarbotnum og undir Nes- og Bakkagiljum, ásamt umhverfis- og útivistartengdum mótvægisaðgerðum. 

Íbúafundur á Norðfirði um ofanflóðavarnir
Heildarmynd af snjóflóðavörnum í Neskaupstað. Neðri myndin sýnir göngustígakerfi i endanlegri mynd. Það eru síðustu tveir áfangar af fjórum sem verða kynntir á íbúafundinum í Safnahúsinu.

Íbúafundurinn verður í Safnahúsinu í Neskaupstað, fimmtudaginn 12. febrúar kl. 20:00.  Kynntar verða fyrirhugaðar framkvæmdir vegna ofanflóðavarna undir Urðarbotnum og undir Nes- og Bakkagiljum.

Á fundinn mæta Hafsteinn Pálsson, Ofanflóðasjóði, Kristín Martha Hákonardóttir og Björn Halldórsson, verkfræðistofunni Verkís og Þórhildur Þórhallsdóttir, Landmótun. Fundarstjóri er Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri.

Tillögur að vörnum neðan Urðarbotna taka mið af því að byggð stendur nærri hlíðinni og stafar byggðinni því hætta af jafnvel litlum snjóflóðum, sem eiga upptök sín í hvilftum neðan Urðarbotna. Einnig er hugsanlegt að berg hlaupi í sjó fram úr bergfyllu í Urðarbotni. Lagt er m.a. til að varnargarður standi 10 til 14 m yfir óhreyfðu landi. Heildarefnismagn í garða og keilur er áætlað um 145.000 m3. Kostnaður við framkvæmdina er metinn um 700 m.kr.

Tillögur að vörnum neðan nes- og Bakkagils taka mið af hættu af stórum snjóflóðum úr upptakasvæðum ofan giljanna, sem eru jafnfram stærstu upptakasvæðin í Neskaupstað. Lagt er m.a. til varnargarður standi 12 til 18 metra yfir ohreyfðu landi. heildarefnismagn í garða og keilur er áætlað um 175.000 m3. Kostnaður við framkvæmdina er metinn um 1.800 m.kr.

Samhliða varnarmannvirkjum verður ráðist í ýmsar umhverfis- og útivistartengdar framkvæmdir sem einnig verða kynntar á íbúafundinum.

Fleiri myndir:
Íbúafundur á Norðfirði um ofanflóðavarnir
Íbúafundur á Norðfirði um ofanflóðavarnir

Frétta og viðburðayfirlit