mobile navigation trigger mobile search trigger
06.05.2022

Knattspyrnuveisla í Fjarðabyggðarhöllinni 6. maí

Laugardaginn 7. maí verður sannkölluð veisla fyrir fótaboltaáhugafólk í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Kvennalið Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis og karlalið KFA eiga bæði heimaleiki á morgun. Það er því tilvalið að skella sér í höllina og styðja okkar lið til sigurs!
 
Knattspyrnuveisla í Fjarðabyggðarhöllinni 6. maí
Klukkan 13:00 taka stelpurnar í Fjarðabyggð/Hetti/Leikni á móti Fjölni í fyrsta leik sínum í sumar í Lengjudeildinni. Stelpurnar sigruðu 2. deildinni í fyrra með glæsibrag og mæta nú til leiks í Lengjudeildinni. Nánari upplýsingar um leikinn má finna á fésbókarsíðu F/H/L með því að smella hér.
 
Klukkan 16:00 taka svo strákarnir í KFA, ný sameinuðu liði Leiknis og KFF á móti Knattspynufélagi Fjallabyggðar í höllinn. Það verður spennandi að fylgjast með ný sameinuðu liði KFA sem spilar í 2. deild í sumar. Nánari upplýsingar um leikinn má finna á facebook með því að smella hér

Frétta og viðburðayfirlit