mobile navigation trigger mobile search trigger
24.11.2023

Leikskólakennarar við Dalborg

Leikskólinn Dalborg auglýsir eftir leikskólakennurum til starfa. Dalborg er 60 nemenda skóli sem skiptist á 4 deildar. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Dalborg vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur undir stjórn deildarstjóra að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
  • Situr starfsmannafundi, deildarfundi og aðra fundi er leikskólastjóri segir til um og varða starfsemi leikskólans.
  • Samstarf við foreldra/forráðamenn barna á leikskólanum.

Menntun og hæfniskröfur:  

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Starfslýsing leikskólakennara 

Greitt er 45.000 kr. álag fyrir að matast með börnunum og unnið er eftir kjörum um styttingu vinnuvikunnar. Starfsfólki stendur einnig til boða íþrótta- og tómstundastyrkur.

Umsóknarfrestur er til og með 8. desember 2023. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í janúar.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Öll kyn eru hvött til að sækja um stöðuna. Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið.

Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Fjarðabyggðar https://starf.fjardabyggd.is/storf/Default.aspx 

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Fáist ekki leikskólakennarar verða ráðnir inn starfsmenn í stöðu leiðbeinanda.

Allar frekari upplýsingar gefur Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, leikskólastjóri í síma 476-1341 eða á thordismb@skolar.fjardabyggd.is og einnig Helena Rós Rúnarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 476-1341 eða á helena@skolar.fjardabyggd.is 

Sótt er um starið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit