mobile navigation trigger mobile search trigger
21.02.2024

Lóa - nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina

Opið er fyrir umsóknir í Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir Landsbyggðina. Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2024.

Lóa - nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina

Hlutverk styrkjanna er að auka við nýsköpun á landsbyggðinni og styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum. Styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni. Stuðla að uppbyggingu vistkerfis fyrir nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðla starf á forsendum svæðanna. 

Styrkjunum er úthlutað til nýsköpunarverkefna utan höfuðborgarsvæðisins. Styrkjum er úthlutað til árs í senn, hvert verkefni getur hlotið að hámarki 20% af heildarúthlutun hvers árs. Mótframlag frá umsækjanda þarf að lágmarki að vera 30%. Matshópur metur umsóknir í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda.

Umsóknir berist rafrænt á minarsidur.hvin.is.

Lóu nýsköpunarstyrkir eru ætlaðir verkefnum sem komin eru af byrjunarstigi.

Við mat á nýnæmi verkefna er stuðst við skilgreiningu OECD um nýsköpun. Nýsköpun er skilgreind sem innleiðing nýrrar eða mjög endurbættrar vöru, þjónustu eða ferils, nýrrar aðferðar til markaðssetningar eða nýrrar skipulagsaðferðar í viðskiptaháttum, skipulagi á vinnustað eða ytri samskiptum. 

Heildarfjárhæð Lóu árið 2024 er 150 milljónir króna. 

Frekari upplýsingar má nálgast inná heimasíðu Stjórnaráðssins. 

Frétta og viðburðayfirlit