Leikskólinn Eyrarvellir í Neskaupstað leitar að matráð
Eyrarvellir er átta deilda leikskóli sem er skipt í 8 deildir. Leikskólinn leggur áherslu á vináttu,læsi og uppbyggingastefnuna Uppeldi til ábyrgðar. Leikskólinn er fyrir börn frá 1 til 6 ára og er sérstaklega sóst eftir matráð með þekkingu og áhuga á næringu barna á leikskólaaldri.
Matráður sér um daglegan rekstur eldhúss leikskólans. Um framtíðarstarf er að ræða. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, eigi síðar en 16. júlí 2020.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
- Menntun á sviði matreiðslu og næringar og /eða reynsla á því sviði.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð íslenskukunnátta.
Starfslýsing - Yfirmatráður Eyrarvalla
Umsóknarfrestur er til og með 1.júní 2020.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Halla Höskuldsdóttir, leikskólastjóri í síma 477-1460 / 847-8232 eða á halla@skolar.fjardabyggd.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um starfið.
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér