mobile navigation trigger mobile search trigger
11.12.2023

Opið fyrir innsendingar tónverka ungmenna á Austurlandi

Krakkar í 5.-10. bekk hafa nú eintakt tækifæri til að senda inn drög að tónverki/lagi sem þau semja sjálf og komast þannig inn í skemmtilegar tónsmíðavinnustofur sem haldnar verða eina helgi í byrjun næsta árs.

Opið fyrir innsendingar tónverka ungmenna á Austurlandi

Allir höfundar tónverka fá aðgang að tónsmiðjum Upptaktsins á Austurlandi sem haldnar eru í Sköpunarmiðstöðinni í byrjun febrúar  þar sem unnið er markvisst úr hugmyndum með aðstoð frá tónlistarlistarfólki. Í framhaldi eru hljóðrituð demó í Studio Síló sem send eru í Upptaktinn sem fer fram í Hörpu. Dómnefnd Upptaktsins velur svo einn ungan austfirskan tónsmið og tónsmíð hans til áframhaldandi þátttöku í Upptaktinum í Hörpu, vinnustofum og tónleikum á Barnamenningarhátíð á vormánuðum. Tónlistarmiðstöðin greiðir ferðakostnað fyrir tónhöfund og forráðamann til Reykjavíkur. 

Lengd tónverks skal vera 1 -5 mínútur að hámarki en þau geta bæði verið einleiks og samleiksverk fyrir allt að fimm flytjendur. Lagið má vera ósungið og því er ekki er nauðsynlegt að skila inn texta við lagið

Skila má tónsmíð inn sem hljóðriti á MP3/Wav/Myndbandi eða í hefðbundinni / grafískri nótnaskrift. Hugmyndir s.s. upptökur, nótur, texti eða grafísk lýsing má endilega fylgja með verkinu.

 Markmið með Upptaktinum á Austurlandi eru fjórþætt:

  1. Að styðja að tónsköpun ungs fólks og hvetja börn og unglinga á Austurlandi til að tjá sig með tónlistarsköpun og semja eigin tónlist óháð tónlistarstíl.
  2. Að aðstoða börn og unglinga á Austurlandi við að fullvinna hugmyndir sínar í vinnusmiðju og varðveita þannig tónlistina.
  3. Að gefa börnum og unglingum á Austurlandi tækifæri á að fá leiðsögn frá austfirsku fagfólki og taka þátt í vinnustofu.
  4. Að safna saman tónverkum barna á Austurlandi og senda áfram í Upptaktinn í Hörpu þar sem dómnefnd velur eitt verk eða fleiri áfram til flutnings á  tónleikum með fagfólki við kjöraðstæður í Hörpu. Þau sem komast áfram taka þátt í tónsmiðjum með nemum úr Listaháskóla Íslands og fagfólki í tónlist.

Tónverk skulu send á tonleikahus@tonleikahus.is

Opið er fyrir umsóknir til 15. janúar 2024 en við hvetjum ykkur til að senda inn fyrr en seinna. Upplýsingar um nafn, aldur og skóla höfundar þurfa að fylgja innsendingunni sem og símanúmer og tölvupóstfang.

Aldur: 5.-10. Bekkur // Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2024.

Það er Tónlistarmiðstöð Austurlands/Menningarstofa Fjarðabyggðar sem heldur utan um Upptaktinn á Austurlandi.

Frekari upplýsingar veitir Jóhann en senda má skilaboð á tonleikahus@tonleikahus.is // facebook.com/TonlistarmidstodAusturlands 

Upptakturinn á Austurlandi nýtur stuðnings frá Uppbyggingarsjóði og er kynntur á BRAS.

Frétta og viðburðayfirlit