mobile navigation trigger mobile search trigger
10.08.2022

Samband sveitarfélaga á Austurlandi óskar eftir tilnefningum til Menningarverðlauna SSA árið 2022.

Menningarverðlaun SSA eru veitt einstaklingi, stofnun eða félagasamtökum á Austurlandi fyrir eftirtektarvert framtak á sviði menningar á undanförnum árum/áratugum eða einstaks menningarafreks sem er öðrum fyrirmynd. 

Samband sveitarfélaga á Austurlandi óskar eftir tilnefningum til Menningarverðlauna SSA árið 2022.

Verðlaunin eru í formi verðlaunafjár að upphæð 250.000 kr. og heiðursskjals sem afhent er á haustþingi SSA.
Tilnefningu skal fylgja stutt greinargerð um viðkomandi einstakling, stofnun eða félagasamtök þar sem tilnefningin er rökstudd. Tilnefningar án rökstuðnings eru ekki teknar gildar. Allir hafa rétt á að senda inn tilnefningar. Sjá nánar á heimasíðunni www.ssa.is.
Skilafrestur tilnefninga er til 28. ágúst 2022 um netfangið asdis@austurbru.is.

Frétta og viðburðayfirlit