mobile navigation trigger mobile search trigger
20.02.2024

Skapandi sumarstörf í Fjarðabyggð 2024

Hefur þú áhuga á að vinna við líflegar uppákomur, við að skapa og vera hluti af lifandi og skemmtilegu starfsumhverfi, vinna við fjölbreytt menningarverkefni og að læra nýja hluti? Langar þig að upplifa draumasumarið þitt í sumar? Ef svarið er já við öllum þessum spurningum þá eru skapandi sumarstörf í Fjarðabyggð eitthvað fyrir þig!
Fjarðabyggð leitar að ungu fólki sem fætt er á árunum 1999 til 2007 til að taka þátt í skapandi sumarstarfi Fjarðabyggðar í allt að níu vikur á tímabilinu 27. maí til 2. ágúst 2024.

Skapandi sumarstörf í Fjarðabyggð 2024

Verkefni:

  • Starfið verður mótað af þeim verkefnum sem þarf að uppfylla eins og ákveðna skapandi þjónustu við samfélagið, til dæmis að koma fram við ýmis tilefni í byggðakjörnunum eftir því sem tími og aðstæður leyfa og með áhugasvið þátttakanda að leiðarljósi.
  • Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að læra nýja hluti og að opna á ný listform og kanna nýjar stefnur. Mikilvægt er að umsækjendur geti unnið sjálfstætt sem og í hóp undir leiðsögn frá verkefnastjóra

Hæfni:

  • Skapandi sumarstörf eru hugsuð fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að efla listsköpun sína og um leið glæða sveitarfélagið lífi með listrænum og skapandi uppákomum.
  • Skapandi sumarstörf eru fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á skapandi verkefnum og vill vinna við myndlist og gjörninga, leiklist/sviðslist, skriftir, ljósmyndun, tónlist og kvikmyndagerð sem og ýmislegt annað sem tengist listum og menningu í Fjarðabyggð.

Starfslýsing - skapandi sumarstarfsmenn 2024

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2024 Umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin.

Umsækjendur þurfa að skila inn kynningarbréfi um sig, áhugasvið sín sem og hugmyndum að verkefnum sem umsækjandi hefur áhuga á að vinna að í sumar. Við val á umsækjendum verður tekið tillit til reynslu umsækjenda, sýnileika og frumleika hugmynda, fjölbreytni, kynjahlutfalls og gæði umsókna umsækjenda.

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Jóhannson, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar í síma 470 9038 eða á póstfangið menningarstofa@fjardabyggd.is

Fleiri myndir:
Skapandi sumarstörf í Fjarðabyggð 2024

Frétta og viðburðayfirlit