mobile navigation trigger mobile search trigger
28.03.2023

Skólahald í Fjarðabyggð miðvikudaginn 29. mars

Skólahald fellur niður í leik-, grunn- og tónskóla í Neskaupstað og á leikskólanum Dalborg, að Dalbraut Eskifirði. Snillingadeild leikskólans sem staðsett er í Eskifjarðaskóla verður opinn. Auk þess mun ekkert skólahald verða í Verkmenntaskóla Austurlands.

Víðtækar rýmingar eru enn í gildi á þessum stöðum, sem ljóst er að hefur áhrif á starfsemi þessara stofnanna.

Skólahald í Fjarðabyggð miðvikudaginn 29. mars

Skólahald í leik-, grunn- og tónskólum verður með hefðbundnum hætti á Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði, ásamt Eskifjarðarskóla.

Frétta og viðburðayfirlit