mobile navigation trigger mobile search trigger
13.01.2023

Sorphirða er enn á eftir á áætlun

Sorphirða er enn a.m.k. viku á eftir áætlun. Stefnt er að því að klára að tæma gráu tunnurnar í dag á Reyðarfirði og byrja á Fáskrúðsfirði. Á morgun laugardag verður byrjað og klárað á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík. Íbúar eru hvattir til að moka frá sorpgeymslum sínum til að greiða leið sorphirðufólks að gráu tunnunum þannig að hægt sé að tryggja að þær séu tæmdar.

Sorphirða er enn á eftir á áætlun

Ef aðgengið að tunnunum er ekki greiðfært þegar sorpbílar eru á ferð um hverfin eru tunnurnar ekki tæmdar fyrr en við næstu losun samkvæmt sorphirðudagatali.

Mikilvægt er að hægt sé að loka tunnunum með góði móti, allt umfram sorp þurfa íbúar að koma sjálfir á móttökustöðvar. 

Sorphirðudagatal má finna hér

Frétta og viðburðayfirlit