mobile navigation trigger mobile search trigger
19.01.2023

Sorphirða

Brúna tunnan verður tæmd í dag fimmtudag (19.01) á Reyðarfirði. Svo verða Suðurfirðirnir tæmdir á morgun föstudag. 

Mikilvægt er að íbúar tryggi aðgengi að tunnunum og moki frá sorpgeymslum til að greiða leið sorphirðufólks þannig að hægt sé að tryggja að þær séu tæmdar.

Sorphirða

Ef aðgengið að tunnunum er ekki greiðfært þegar sorpbílar eru á ferð um hverfin eru tunnurnar ekki tæmdar fyrr en við næstu losun samkvæmt sorphirðudagatali.

Mikilvægt er að hægt sé að loka tunnunum með góði móti, allt umfram sorp er ekki tekið og þurfa íbúar að koma því sjálfir á móttökustöðvar. 

Sorphirðudagatal má finna hér

Það er stefnt að því að vinna upp seinkunina í þessari viku og þeirri næstu. 

Frétta og viðburðayfirlit