mobile navigation trigger mobile search trigger
06.09.2021

Styrkur til F/H/L fyrir góðan árangur

Í tilefni af því kvennalið Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis tryggði sér um helgina sæti í 1. deild kvenna að ári ákvað bæjarráð Fjarðabyggðar á fundi sínum í morgun að styrkja liðið um 250.000 þúsund krónur vegna góðs árangurs liðsins í sumar.

Styrkur til F/H/L fyrir góðan árangur

Bókun bæjarráðs hljómar svo:

„Bæjarráð Fjarðabyggðar óskar Meistaraflokki kvenna hjá Fjarðabyggð, Hetti og Leikni til hamingju með árangur sinn í 2. deild og að liðið færist upp í 1. deild á næsta ári. Í tilefni af því samþykkir bæjarráð að veita meistarflokknum 250.000 kr. styrk vegna árangursins.“

Fjarðabyggð sendir leikmönnum, þjálfurum og aðstandendum F/H/L innilegar hamingjuóskir með þennan glæsilega árangur.

Frétta og viðburðayfirlit