mobile navigation trigger mobile search trigger
22.02.2024

Sumarafleysingar Slökkvilið Fjarðabyggðar

Slökkvilið Fjarðabyggðar óskar eftir að ráða starfsmenn í sumarafleysingar á slökkvistöðinni að Hrauni á Reyðarfirði. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu við sjúkraflutninga og slökkvistörf. Leitað er að áhugasömum aðilum sem leggja metnað í faglegt og gott starf þar sem traust og samheldni ríkir.

Helstu verkefni:

  • Sjúkraflutningar
  • Slökkvistörf
  • Þátttaka í æfingum og þjálfun annarra viðbragðsaðila.
  • Umhirðu húss, tækja og búnaðar og annarri þeirri vinnu er fellur til á slökkvistöð.

Menntunar- og/eða hæfniskröfur:

  • Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8.gr. reglugerðar nr.792/2001, m.a.
  • Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
  • Æskilegt er að hafa gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið (C-réttindi)
  • Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu.
  • Að auki þurfa umsækjendur að:
  • Standast læknisskoðun og þrekpróf.
  • Hafa jákvætt hugarfar
  • Hafa framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að hafa á sér gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
  • Menntun og/eða reynsla af starfi slökkviliðs- og/eða sjúkraflutningamanna er kostur

Starfslýsing sumarafleysingu slökkvilids- og sjúkraflutningsmanna

Fylgigögn: Prófskírteini, læknisvottorð, ökuferilsskrá, ljósrit af ökuskírteini og almenn ferilsskrá.

Kröfur um viðbragð setja skorður á búsetu innan ákveðinnar fjarlægðar frá slökkvistöð. Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl 2024

Nánari upplýsingar veitir Júlíus Albert Albertsson, slökkviliðsstjóri, julius@fjardabyggd.is eða í síma 470 9081.

Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit