mobile navigation trigger mobile search trigger
19.03.2020

Sumarstörf hjá þjónustu- og framkvæmdamiðstöð

Ungt fólk fætt 2004 og áður getur sótt um átta vikna sumarstarf verkamanns. Starfið heyrir undir þjónustu- og framkvæmdamiðstöð Fjarðabyggðar.

  • Starf við hin ýmsu störf tengdum þjónustu- og framkvæmdamiðstöð.
  • Viðhald gatna.
  • Viðhald göngubrúa.
  • Verkefni tengd bæjarhátíðum, sláttur og ýmis þjónusta við íbúa.
  • Verkefni tengd veitum Fjarðabyggðar.
  • Verkefni tengd höfnum Fjarðabyggðar.

Umsóknarfrestur er til og með 25.maí 2020

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ari Sigursteinsson, bæjarverkstjóri, ari.sigursteinsson@fjardabyggd.is eða í síma 470-9000

Sótt er um starf á ráðningarvef sveitarfélagsins.

Frétta og viðburðayfirlit