mobile navigation trigger mobile search trigger
08.02.2024

Sumarstörf í garðyrkjudeild ungmenni fædd 2008 og eldri

Garðyrkjudeild fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf laus til umsóknar. Í störfunum felst almenn garðyrkjustörf og vinna við fegrun bæjarfélagsins t.d sláttur og umhirða grænna svæða.

Sumarstörfin í garðyrkjudeildinni eru ætluð ungu fólki fæddu 2008 og eldri. Umsækjendur þurfa að vera stundvísir og samviskusamir, búa yfir almennri kurteisi og hæfni í samskiptum. Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni er mikill kostur ásamt áhuga á umhverfismálum.

Umsóknarfrestur er til og með 13. maí.

Frekari upplýsingar veitir Helga Björk Einarsdóttir helga.b@fjardabyggd.is

Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit