mobile navigation trigger mobile search trigger
13.04.2023

Þjónustumiðstöð Almannavarna í Egilsbúð opin út vikuna

Þjónustumiðstöð Almannavarna í Egilsbúð verður opin út vikuna frá kl. 11-18. Þar er í boði kaffi, spjall, stuðningur við íbúa og aðra sem á einhvern hátt hafa orðið fyrir áhrifum ofanflóða og ofanflóðahættu á Austfjörðum.

Þjónustumiðstöðin stendur öllum á Austfjörðum til boða og þau sem hafa ekki tök á að koma í heimsókn eða kjósa að gera það ekki geta haft samband í gegnum síma 855 2787 eða í netpósti á netfangið fyrirspurnir@almannavarnir.is

Þjónustumiðstöð Almannavarna í Egilsbúð opin út vikuna

Frétta og viðburðayfirlit