mobile navigation trigger mobile search trigger
17.11.2021

Tilkynning frá aðgerðastjórn - 17. nóvember

Eitt nýtt smit bættist við á Austurlandi í gær og tengdist það grunnskólanum í Breiðdal og á Stöðvarfirði. Nú eru alls fjögur staðfest smit hjá nemendum skólans og töluverður fjöldi fólks er í sóttkví vegna þess. Í gærkvöldi 16.nóvember, voru tekin um 80 sýni í sýnatöku í Breiðdal og á Stöðvarfirði og var fyrirhugað að senda sýnin með fyrstu vél en fluginu var síðan aflýst vegna veðurs. 

Tilkynning frá aðgerðastjórn - 17. nóvember

Sýnin verða því send með miðdegivélinni í dag 17.nóvember, ásamt þeim sýnum sem voru tekin á Egilsstöðum og Reyðarfirði. Niðurstöðu er því ekki að vænta fyrr en seint í kvöld eða fyrramálið.  Af þeim sökum hefur aðgerðastjórn Austurlands í samráði við skólastjórnendur ákveðið að allt skólahald verði fellt niður í Breiðdal og á Stöðvarfirði á morgun fimntudaginn 18.nóvember, á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr sýnatöku.

Frétta og viðburðayfirlit