mobile navigation trigger mobile search trigger
06.12.2021

Tilkynning frá aðgerðastjórn - 5. desember

Öll hundrað og áttatíu sýnin er tekin voru á Egilsstöðum á föstudag reyndust neikvæð. Því virðist sem Austurland hafi sloppið með skrekkinn að þessu sinni og má það m.a. þakka skjótum og markvissum viðbrögðum íbúa og  skólastjórnenda í kjölfar smita. Hið sama á við um smit er greindust í síðustu viku á Fáskrúðsfirði, öll sýni er tekin voru á Reyðarfirði á föstudag vegna þeirra reyndist neikvæð og engin samfélagssmit hafa greinst. Ástæða er til að þakka viðbrögð þar einnig.

Tilkynning frá aðgerðastjórn - 5. desember

Leikskólinn Tjarnarland á Egilsstöðum sem lokaður var á föstudag mun opna að nýju á mánudag.

Þrátt fyrir góðar niðurstöður er ljóst að á landsvísu er staðan viðkvæm og má lítið út af bregða. Þeir er standa fyrir viðburðum í aðdraganda jóla eru því hvattir til að huga sérstaklega að smitvörnum og taka jafnvel aukaskref í átt að hertum vörnum þar sem þess er kostur. Íbúar eru að sama skapi hvattir til að gæta að persónubundnum sóttvörnum í hvívetna og hafa varann á í margmenni.   

Frétta og viðburðayfirlit