mobile navigation trigger mobile search trigger
15.11.2021

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi - 15.nóvember

Ekkert nýtt smit hefur greinst í Breiðdal og á Stöðvarfirði. Margir íbúar fóru hinsvegar í sýnatöku í dag og ætti niðurstaða að liggja fyrir á morgun þriðjudag. Skólahald fyrsta til sjötta bekkjar grunnskólans liggur niðri og mun svo vera meðan niðurstöðu er beðið. Leikskólinn verður og lokaður á morgun.  Þá greindist smit á Egilsstöðum í dag. Ekki er talið að það hafi dreift sér. Smitrakning stendur yfir.  Aðgerðastjórn beinir því til íbúa að gæta að sér í hvívetna enda smit enn að greinast í umdæminu og brýnt að fara varlega sem fyrr.

 

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi  - 15.nóvember

Frétta og viðburðayfirlit