mobile navigation trigger mobile search trigger
16.11.2021

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi - 16.nóvember

Fimm ný smit greindust eftir sýnatöku í gær, tvö þeirra á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði og þrjú á Egilsstöðum. Fjórir hinna smituðu voru í sóttkví. Smitrakning stendur yfir vegna þess fimmta.

Í ljósi smita sem greinst hafa í Breiðdalsvíkur- og Stöðvarfjarðarskóla verða báðir lokaðir á morgun. Hið sama á við um leikskólann. Þá mun boðið upp á auka sýnatöku í kvöld, 16. nóvember.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi - 16.nóvember

Frétta og viðburðayfirlit