mobile navigation trigger mobile search trigger
22.11.2021

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi - 22. nóvember

Fjórir starfsmenn á Umdæmissjúkrahúsi Austurlands í Neskaupstað eru í sóttkví eftir að COVID-19 smit greindist hjá samstarfsmanni þeirra á föstudagskvöld. Á laugardaginn voru tekin sýni af 70 starfsmönnum sjúkrahússins sem höfðu verið í vinnu dagana á undan. Niðurstöður lágu fyrir seint í gærkvöldi og voru öll sýni neikvæð.  Síðar í vikunni er fyrirhugað að taka sýni aftur af þeim starfsmönnum sem eru í sóttkví og smitgát. Aðgerðastjórn sendir út aðra tilkynningu þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi - 22. nóvember

Frétta og viðburðayfirlit