mobile navigation trigger mobile search trigger
23.11.2021

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi - 23. nóvember

Á Austurlandi eru nú 17 einstaklingar í einangrun og 23 í sóttkví. Í morgun var sýnataka hjá þeim starfsmönnum sjúkrahússins í Neskaupstað sem voru settir í sóttkví eða smitgát. Niðurstöður ættu að liggja fyrir seint í kvöld.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi - 23. nóvember

Nú skiptir máli að allir sem hafa einkenni sem bent geta til COVID-19 smits, bóki PCR sýnatöku á heilsugæslustöð. Það er ekki nægilegt í slíkum tilvikum að taka sjálfspróf eða heimapróf enda geta þau bæði gefið falska jákvæða eða falska neikvæða niðurstöðu. Einnig ber að ítreka að fólk sem kemur erlendis frá þarf að hafa varann á dagana eftir heimkomu, jafnvel þó sýnataka á landamærum innan 48 tíma hafi verið neikvæð. Komi einkenni veikinda fram eftir utanlandsferð er mikilvægt að bókuð sé einkennasýnataka á heilsugæslu og viðkomandi haldi sig heima þar til niðurstaða liggur fyrir.

Aðgerðastjórn vill nýta tækifærið og hvetja íbúa fjórðungsins til að þiggja örvunarbólusetningu þegar boð berst. Þá skiptir máli að við sinnum áfram persónubundnum sóttvörnum, notum spritt og grímur til að verja bæði sjálf okkur og aðra.

Höldum áfram að gera þetta saman.

Frétta og viðburðayfirlit