mobile navigation trigger mobile search trigger
30.07.2021

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi

Framundan er stór ferðahelgi og ljóst að margir eru á leið í útilegu eða á önnur mannamót. Nú sem áður þarf að gæta ítrustu varúðar og mikilvægt að allir leggist á eitt til að sporna gegn útbreiðslu kórónuveirunnar.  Víða um land hafa greinst smit og er stór hluti þeirra einstaklinga utan sóttkvíar, sem þýðir að þó nokkuð er um smit í samfélaginu. Því er hætta á frekari dreifingu smita og um leið fjölgun þeirra. Það er því full ástæða til að brýna fyrir íbúum Austurlands að sinna vel persónubundnum sóttvörnum og fara í sýnatöku ef einkenna verður vart.

Njótum helgarinnar og förum varlega.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi

Frétta og viðburðayfirlit