mobile navigation trigger mobile search trigger
04.08.2021

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi

Mikill vöxtur er í kórónuveirufaraldrinum innanlands og umtalsverður fjöldi smita greinist á hverjum degi. Ljóst er að Austurland er þar ekki undanskilið og eftir síðustu helgi bættust við fleiri smit hér í fjórðungnum. Smitrakning stendur yfir í tengslum við nýjustu smitin og er viðbúið að fjölgi bæði í sóttkví og einangrun.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi

Eins og áður er ákveðin hætta á samfélagssmiti og allt er reynt til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Aðgerðastjórn vill því biðla til fólks að gæta ítrustu varúðar, huga vel að persónubundnum sóttvörnum og vera vakandi fyrir einkennum, jafnvel þó við séum bólusett. Pössum vel upp á viðkvæma hópa, hjúkrunarheimilin okkar og heilbrigðisþjónustuna.

Nú þurfum við öll að standa saman. 

Frétta og viðburðayfirlit