mobile navigation trigger mobile search trigger
10.11.2021

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi

Í gær þriðjudaginn 9.nóvember, var ráðist í viðamikla sýnatöku á Vopnafirði þar sem upp hafði komið grunur um COVID-19 smit. Tekin voru um 150 sýni og af þeim hafa 8 greinst jákvæð. Enn á eftir að greina töluverðan fjölda svo viðbúið er að smittölur geti enn hækkað.  

Tvö smit greindust auk þess á Egilsstöðum og voru viðkomandi ekki í sóttkví við greiningu. Smitrakning stendur yfir. Aðgerðastjórn fylgist áfram með gangi mála og sendir frá sér tilkynningu þegar niðurstöður liggja fyrir.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi

Frétta og viðburðayfirlit