mobile navigation trigger mobile search trigger
10.11.2021

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi

Á Vopnafirði bættist við eitt nýtt smit eftir sýnatöku gærdagsins svo nú eru alls níu einstaklingar í einangrun á Vopnafirði. Töluverður fjöldi er í sóttkví og smitgát. Aftur var boðið upp á sýnatöku á Vopnafirði í dag. Í samráði við aðgerðastjórn Austurlands var ákveðið að hafa grunnskóla og leikskóla á Vopnafirði lokaða á morgun fimmtudag, á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr sýnatöku dagsins. Ekki hafa bæst við nein ný smit á Egilsstöðum en opið var í sýnatöku í hádeginu og niðurstöður ættu að liggja fyrir í kvöld.  Önnur tilkynning verður send út um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi

Frétta og viðburðayfirlit