mobile navigation trigger mobile search trigger
11.11.2021

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi

Eitt nýtt smit bættist við á Austurlandi í gærkvöldi. Viðkomandi var ekki í sóttkví við greiningu. Smitið hefur tengsl við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar þannig að í kjölfarið var ákveðið í samráði við aðgerðastjórn, að hafa bæði grunnskóla og leikskóla á Fáskrúðsfirði lokaða í dag fimmtudag og á morgun föstudag, á meðan unnið væri að smitrakningu.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi

Um 60 mættu í sýnatöku í morgun á Reyðarfirði í tengslum við smitrakningu. Niðurstöður úr þeirri sýnatöku er að vænta seint í kvöld eða fyrramálið.  Á Vopnafirði voru tekin um 100 sýni í gær, hluti af þeim var seinni sýnataka hjá einstaklingum í sóttkví. Sýnin voru send með flugi snemma í morgun svo niðurstöður ættu að liggja fyrir í kvöld.  Engin ný smit hafa greinst á Egilsstöðum.

Aðgerðastjórn fylgist áfram með gangi mála og sendir út frekari tilkynningar þegar nýjar upplýsingar berast.

Frétta og viðburðayfirlit