mobile navigation trigger mobile search trigger
21.11.2021

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi

Seint á föstudagskvöldið greindist smit hjá starfsmanni Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Strax á laugardagsmorguninn var hafist handa við að kortleggja þá sem höfðu verið í samskiptum við þann smitaða í samráði við rakningateymið. Til að gæta fyllstu varúðar var ákveðið að skima alla starfsmenn sem voru í vinnu síðastliðna daga og fór sú skimun fram í Neskaupstað kl. 16 í gær laugardag.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi

Um 70 sýni voru tekin sem send hafa verið suður. Niðurstöður koma því ekki fyrr en seint á sunnudagskvöld. Á meðan unnið er að því að skoða mögulega útbreiðslu smits innan sjúkrahússins hefur verið ákveðið í samráði við sóttvarnateymi HSA að takmarka heimsóknir á sjúkrahúsið og hjúkrunarheimilið fram á þriðjudag. Á meðan á því stendur verða heimsóknir aðeins í sérstökum tilfellum og þá metið í samráði við deildarstjóra.

Við hvetjum alla þá sem hafa einkenni sem geta bent til COVID-19, eða þá sem grunar að þeir gætu hafa verið útsettir fyrir smiti, að mæta í sýnatöku. Aðgerðastjórn fylgist með gangi mála og sendir út nýja fréttatilkynningu þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.

Frétta og viðburðayfirlit