mobile navigation trigger mobile search trigger
12.11.2021

Tilkynning frá aðgerðastjórn - föstudagur 12.nóvember

Engin ný smit greindust á Austurlandi eftir sýnatöku gærdagsins. Vonir standa til að náðst hafi að hefta útbreiðslu út frá þeim smitum sem greinst hafa á Vopnafirði, Egilsstöðum og Fáskrúðsfirði. Áfram þurfum við þó að gæta varúðar og hafa lágan þröskuld fyrir því að fara í PCR sýnatöku ef einkenna verður vart. Hertar samkomutakmarkanir voru kynntar í morgun og taka gildi á miðnætti, aðgerðastjón hvetur til þess að fólk kynni sér hertar reglur. Nú sem aldrei fyrr er nauðsyn fyrir að við gerum þetta saman.

Tilkynning frá aðgerðastjórn - föstudagur 12.nóvember

Frétta og viðburðayfirlit