mobile navigation trigger mobile search trigger
18.12.2020

Tilkynning frá embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi og Veðurstofu Íslands, hefur lýst yfir hættustigi á Eskifirði vegna skriðuhættu.
Sprungur í gamla Oddskarðsveginum, ofan Eskifjarðar hafa stækkað í dag. Veðurstofan mælist til þess að Botnabraut, Hátún, Helgafell, Lambeyrarbraut, Hólsvegur og Strandgata verði rýmdar. Íbúar í viðkomandi götum eru beðnir um að skrá sig í fjöldahjálparstöð Rauða kross Íslands í Eskifjarðarkirkju að Dalbraut 2 á Eskifirði eða hringja í síma 1717.
Tilkynning frá embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi

Frétta og viðburðayfirlit