mobile navigation trigger mobile search trigger
29.03.2023

Tilkynning frá Lögreglunni á Austurlandi 29. mars kl. 17:30

Fundur var áðan með Veðurstofu vegna mikillar úrkomu á Austfjörðum næsta eina og hálfa sólarhringinn eða svo. Gert er ráð fyrir umtalsverðri úrkomu í kvöld og fram til föstudagsmorguns. Byrjar á sunnanverðum fjörðunum. Snjókomu er spáð og rigningu.
Það er mat Veðurstofu að ekki sé þörf á frekari rýmingum að svo stöddu. Vegna mögulegra krapaflóða eru íbúar þó beðnir um að hafa varann á nærri árfarvegum.
Íbúar beðnir um að fylgjast vel með tilkynningum frá lögreglu á vefmiðlum.
Tilkynning frá Lögreglunni á Austurlandi 29. mars kl. 17:30

Frétta og viðburðayfirlit