mobile navigation trigger mobile search trigger
30.03.2023

Tilkynning frá Lögreglunni á Austurlandi 30. mars kl. 15:10 - Frekari rýming á Eskifirði

Veðurstofan hefur lýst yfir hættuástandi vegna ofanflóða og því ákveðið rýmingu á reitum 11 og 12 á Eskifirði. Rýmingin gildir frá klukkan 16:00 þangað til önnur tilkynning verður gefin út

Götur og húsnúmer sem um ræðir á Eskifirði eru:

Bleiksárhlíð 62 – 67 – 67a – 69

Fossagata 1

Bakkastígur 1

Grjótárgata 6 – þar með talið bílskúrar C/D/E

Túngötustígur 1 – 3a

Strandgata 36 – 37a – 37b

Íbúar eru beðnir um að gefa sig fram í fjöldahjálparstöð í grunnskólanum á Eskifirði eða hafa samband í síma 1717 ef fyrirhugaður dvalarstaður liggur fyrir.

Fulltrúar aðgerðastjórnar munu fara milli húsa frá klukkan 15 og 16 og aðstoða og veita leiðbeiningar þeim er þurfa.

 

Tilkynning frá Lögreglunni á Austurlandi 30. mars kl. 15:10 - Frekari rýming á Eskifirði

Frétta og viðburðayfirlit