mobile navigation trigger mobile search trigger
04.01.2023

Tilkynning varðandi Eskifjarðarskóla og íþróttahúsið á Eskifirði

Í lok nóvember 2022 var verkfræðistofan EFLA fengin til að taka sýni í rýmum í Eskifjarðarskóla og íþróttahúsinu á Eskifirði vegna gruns um myglu. Niðurstaða sýnatökunnar liggur nú fyrir. Í Eskifjarðarskóla greindist mygla í hluta sýna sem tekin voru á völdum stöðum í byggingunni. Annars vegar er um að ræða fundarherbergi, anddyri á annarri hæð skólans og stofa 312 á þriðju hæð sem tekin var úr notkun í haust vegna áðurnefnds gruns um myglu.

Tilkynning varðandi Eskifjarðarskóla og íþróttahúsið á Eskifirði

Í Íþróttahúsi Eskifjarðar greindist mygla í sýnum sem tekinn voru úr suðaustur vegg hússins, en ekki úr öðrum sýnum sem tekin voru í húsinu. Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar vinnur nú að því að fara í viðhaldsaðgerðir sem þarf vegna þessara mála og meta byggingarnar frekar. Þessi vinna verður unninn í nánu samstarfi við sérfræðinga EFLU, skólastjórnendur, foreldra, nemendur og starfsfólk í Eskifjarðarskóla. Í næstu viku er stefnt á að funda með starfsmönnum Eskifjarðarskóla og verða sérfræðingar frá EFLU á þeim fundi til að fara yfir niðurstöður sýnatökunnar.

 

Frétta og viðburðayfirlit