mobile navigation trigger mobile search trigger
08.03.2018

Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í Fannardal

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi frístundabyggðar í Fannardal samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagstillagan afmarkar fimm 1. ha lóðir fyrir frístundahús í landi Fannardals í Norðfirði .

Deiliskipulagstillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð og í þjónustugátt í bókasafninu á Norðfirði frá og með 8. mars 2018 til og með 19. apríl 2018. Athugasemdarfrestur er til sama tíma. Tillöguna má skoð hér: Skipulagsuppdráttur-Fannardalur 2018.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Fjarðabyggð

Frétta og viðburðayfirlit