mobile navigation trigger mobile search trigger
06.09.2017

Tilnefningar til umhverfisverðlauna Fjarðabyggðar 2017

Auglýst er eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Fjarðabyggðar í eftirfarandi flokkum:

  • Snyrtilegasta lóðin, íbúðarsvæði.
  • Snyrtilegasta lóðin, atvinnusvæði.
  • Snyrtilegasta lóðin, dreifbýli.

Íbúum gefst kostur á að skila inn tilnefningum fyrir þær lóðir sem þeim finnst koma til greina í ofangreinda flokka. Dómnefnd velur úr tilnefningum og gerir tillögur til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um verðlaunahafa.

Frestur til að tilnefna er til 20. september nk. og skal skila tilnefningum til þjónustumiðstöðvar Fjarðabyggðar, Hafnargata 2, 730 Reyðarfirði eða til umhverfisstjóra á netfangið anna.b.samuelsdottir@fjardabyggd.is. Þær skulu vera merktar „Umhverfisviðurkenning 2017“


Anna Berg Samúelsdóttir
Umhverfisstjóri

Tilnefningar til umhverfisverðlauna Fjarðabyggðar 2017

Frétta og viðburðayfirlit