mobile navigation trigger mobile search trigger
22.03.2023

Ungmennráð Fjarðabyggðar og Múlaþings senda bréf á ráðherra og forsvarsmenn Skólahreystis

Í síðustu viku tóku Ungmennaráð Fjarðabyggðar og Múlaþings sig saman og skrifuðu bréf til Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, Andrésar og Láru hjá Skólahreysti ásamt helstu styrktaraðilum þess efnis að hvetja forsvarsmenn  Skólahreystis til að endurskoða staðsetningu keppninar og að halda undankeppni á Austurlandi, eins og áður hefur verið gert. 

Ljóst er að mikið ójafnvægi myndast á milli þeirra liða sem ekki hafa tök á því að senda með sér stuðningslið til að hvetja sína keppendur áfram. 

Ungmennráð Fjarðabyggðar og Múlaþings senda bréf á ráðherra og forsvarsmenn Skólahreystis
Ungmennaráð Fjarðabyggðar

Eins og kemur fram í bréfinu: 

Á Austurlandi eru 12 grunnskólar sem fá ekki sömu tækifæri í Skólahreysti vegna þessa fyrirkomulags. Það hefur reynst mörgum grunnskólum of dýrt að senda stuðningslið með keppendum og því hafa nemendur frá Austurlandi sem keppa í Skólahreysti ekki sama stuðning í undankeppninni og aðrir. Mikil stemning hefur myndast hjá liðunum þegar þau sjá vini sína, samnemendur, kennara og foreldra hvetja þau áfram. Það gefur keppendum aukinn kraft og þor sem þau annars missa af og þegar lið frá litlum bæjum úti á landi þurfa að keppa án nokkurs stuðnings frá sínu samfélagi myndast augljóst ójafnvægi.

Með bréfi sínu vilja ungmennaráðin hvetja styrktaraðila Skólahreystis til að auka við styrki sína til að koma henni aftur austur. 

Að lokum segir:

Við viljum því vekja athygli á því hvað það er mikilvægt fyrir nemendur úti á landi að hafa sömu möguleika á því að taka þátt og tökum það fram að bæði ungmennaráð Múlaþings og ungmennaráð Fjarðarbyggðar eru öll af vilja gerð að aðstoða við að það geti orðið að veruleika.

Frétta og viðburðayfirlit