mobile navigation trigger mobile search trigger
06.09.2021

Unnið að viðgerð topplyftunar í Oddsskarði

Unnið hefur verið að lagfæringu topplyftunnar í Oddskarði að undanförnu. Lyftan bilaði þegar topphjól hennar gaf sig í óveðri desember á síðasta ári og ekki reyndist unnt að gera við hana síðastliðinn vetur.

Unnið að viðgerð topplyftunar í Oddsskarði

Viðgerð mun ljúka á næstu dögum og því ætti topplyftan að vera klár þegar skiðavertíðin hefst í vetur. Að verkinu koma starfsmaður skíðasvæðisins, Vélsmiðja G. Skúlasonar og Haki ehf. í Neskaupstað.

Frétta og viðburðayfirlit