mobile navigation trigger mobile search trigger
06.03.2020

Upplýsingar vegna Kórónaveiru (Covid-19)

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónaveiru (COVID-19). Fyrstu smit innanlands voru staðfest í gær og í kjölfarið var ákveðið að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna. Það er gert m.a. á grunni þess að sýkingin er nú farin að breiðast út innanlands.

Virkjun neyðarstigs hefur ekki teljandi áhrif á almenning umfram hættustig sem varað hefur frá 28. febrúar sl. Ekki hefur verið lagt á samkomubann.

Stjórnvöld og viðbragðsaðilar hafa undanfarið unnið að miklu leyti eins og um neyðarstig væri að ræða og því hafa ýmsar ráðstafanir sem neyðarstig kveður á um þegar verið gerðar. Þar má nefna áætlanir um vöktun og farsóttagreiningu ásamt því að tryggja að sóttvarnaráðstöfunum sé beitt.

Sóttvarnalæknir beinir því sérstaklega til þeirra sem teljast til viðkvæmra hópa, einkum þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma og eldri einstaklinga að huga vel að hreinlætisaðgerðum og forðast mannamót að óþörfu.

Á vefsíðu Landlæknis www.landlaeknir.is eru upplýsingar um viðbrögð við COVID-2019 kórónaveirunni uppfærðar jöfnum höndum. Þar er farið yfir hvernig veiran breiðist út og helstu einkenni hennar og hvernig draga má úr sýkingarhættu. Þar segir meðal annars að almenningur geti með auðveldum hætti dregið úr sýkingarhættu með því að gæta vel að persónulegu hreinlæti. Handþvottur og almennt hreinlæti í kringum augu, nef og munn og það að forðast að heilsa með handabandi hefur lykilþýðingu við að forðast smit og fækka smitleiðum.

Frétta og viðburðayfirlit