mobile navigation trigger mobile search trigger
09.01.2023

UPPTAKTURINN - TÓNSKÖPUNARVERÐLAUN BARNA OG UNGMENNA

Krakkar í 5.-10. bekk hafa nú eintakt tækifæri til að senda inn drög (demó) að tónverki/lagi sem þau semja sjálf og komast þannig inn í skemmtilegar tónsmíðavinnustofur sem haldnar verða eina helgi í byrjun ársins.

 

UPPTAKTURINN - TÓNSKÖPUNARVERÐLAUN BARNA OG UNGMENNA

Allir höfundar tónverka fá aðgang að tónsmiðjum Upptaktsins á Austurlandi sem haldnar eru í Sköpunarmiðstöðinni þar sem unnið er markvisst úr hugmyndum með aðstoð frá tónlistarlistarfólki. Í framhaldi eru hljóðrituð demó í Studio Síló sem send eru í Upptaktinn sem fer fram í Hörpu. Dómnefnd velur svo einn ungan austfirskan tónsmið og tónsmíð hans til áframhaldandi þátttöku í smiðjum á vegum Upptaktsins í Reykjavík. Tónsmiðurinn ungi fær þannig líka að taka þátt í Upptaktinum í Hörpu, vinnustofum og tónleikum á Barnamenningarhátíð á vormánuðum. Tónlistarmiðstöðin greiðir ferðakostnað fyrir tónhöfund og forráðamann til Reykjavíkur.        

Lengd tónverks skal vera 2 -6 mínútur að hámarki en þau geta bæði verið einleiks og samleiksverk fyrir allt að fimm flytjendur.

Skila má tónsmíð inn sem hljóðriti á MP3/Wav/Myndbandi eða í hefðbundinni / grafískri nótnaskrift. Hugmyndir s.s. upptökur, nótur, texti eða grafísk lýsing má endilega fylgja með verkinu.

Markmið með Upptaktinum á Austurlandi eru þríþætt:

  1. Að styðja að tónsköpun ungs fólks og hvetja börn og unglinga á Austurlandi til að tjá sig með tónlistarsköpun og semja eigin tónlist.
  2. Að aðstoða börn og unglinga á Austurlandi við að fullvinna hugmyndir sínar í vinnusmiðju og varðveita þannig tónlistina.
  3. Að gefa börnum og unglingum á Austurlandi tækifæri á að fá leiðsögn frá austfirsku fagfólki og taka þátt í vinnustofu og tónleikum með fagfólki við kjöraðstæður á tónleikum í Hörpu.

Tónverk skulu send á tonleikahus@tonleikahus.is en opið er fyrir umsóknir til 15. janúar 2023. Upplýsingar um nafn, aldur og skóla höfundar þurfa að fylgja innsendingunni sem og símanúmer og tölvupóstfang.

Frétta og viðburðayfirlit