mobile navigation trigger mobile search trigger
01.06.2025

Veðurviðvörun

Vakin er athygli á óvenjulegu veðri (miðað við árstíma) sem gengur yfir landið á morgun og þriðjudag. Gefnar hafa verið út gular og appelsínugular viðvaranir og má fylgjast með þróun þeirra hér: https://vedur.is/vidvaranir.

Veðurviðvörun

Gert er ráð fyrir talsverðri snjókomu hér austanlands á morgun og á þriðjudag, aðallega til fjalla. Vanbúnir bílar til „vetraraksturs“ gætu þá lent í vandræðum á fjallvegum. Þá er gert ráð fyrir talsverðri eða mikilli rigningu í kjölfar þessa sem stendur fram á miðvikudag.

Búast má við auknu afrennsli og vatnavöxtum á þriðjudag og miðvikudag sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum. Fólk hvatt til þess að sýna aðgát.

Frétta og viðburðayfirlit