mobile navigation trigger mobile search trigger
18.09.2023

Vélstjóri hjá Fjarðabyggðarhöfnum

Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar auglýsir laust til umsóknar starf vélstjóra fyrir Fjarðabyggðarhafnir, en um er að ræða fullt starf auk bakvakta. Starfið felur í sér vélstjórn og viðhald dráttarbáts Fjarðabyggðarhafna, auk annarra starfa hjá Fjarðabyggðarhöfnum og framkvæmda- og þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Vélstjórnarréttindi VF2
  • Hafngæslumannsréttindi í hafnarvernd er kostur
  • Vigtarréttindi er kostur
  • Bílpróf
  • Góð íslensku kunnátta
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélag og viðkomandi stéttarfélags.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 15. október nk. Skírteini til staðfestingar prófum og réttindum, auk sakavottorðs skal fylgja umsókn.

Nánari upplýsingar veitir Birgitta Rúnarsdóttir, verkefnastjóri Fjarðabyggðarhafna birgitta.runarsdottir@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Frétta og viðburðayfirlit