mobile navigation trigger mobile search trigger
23.01.2015

Viljayfirlýsing um bættan námsárangur

Þann 16. janúar sl. skrifuðu skólastjórnendur leik- og grunnskóla á Austurlandi undir viljayfirlýsingu um bættan námsárangur, með sérstakri áherslu á læsi og stærðfræði.

Viljayfirlýsing um bættan námsárangur

Skólastjórnendur eru með þessu að fylgja eftir ákvörðunum sveitarstjórna á Austurlandi sem ákváðu í sumar að setja aukið fjármagn til kennsluráðgjafar við Skólaskrifstofu Austurlands í þessum sama tilgangi. Mikill samhugur var á fundinum um samstarf milli skóla og  skólastiga. Næstu skref samkvæmt yfirlýsingunni eru að hver skóli setur sér markmið og velur sér leiðir í samráði við starfsfólk, foreldra og nemendur.

Með þessu vilja skólastjórnendur vinna saman að því að þróa skólastarf  á Austurlandi enn frekar og tryggja að nemendur á Austurlandi standi öðrum nemendum ekki að baki í námi.

Skólar á Austurlandi hafa í vetur átt í miklu samstarfi um lestrarkennslu svo sem með innleiðingu Byrjendalæsis og  PALS. 

Frétta og viðburðayfirlit