mobile navigation trigger mobile search trigger
27.06.2025

Aðalskipulagsbreyting á Reyðarfirði

Fjarðabyggð kynnir lýsingu og tillögu á vinnslustigi vegna breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040. Um er að ræða breytt skipulagsákvæði á reit AT-301 vestan miðbæjar á Reyðarfirði. Með breytingunni er veitt takmörkuð heimild fyrir íbúðir og þjónustu á þeim hluta reitsins sem er austan Leiruvogs og norðan Nesbrautar. 

Aðalskipulagsbreyting á Reyðarfirði

Með breytingunni er opnað á þróun til lengri tíma sem er í góðu samræmi við landnotkun á aðlægum reitum.

Óskað er eftir því að íbúar og aðrir hagsmunaaðilar kynni sér breytinguna og komi á framfæri ábendingum um það sem hafa þarf í huga eða betur má fara við áframhaldandi vinnslu tillögunnar. Gögn tillögunnar er að finna í skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is Mál nr.876/2025 og á vef sveitarfélagsins. Ábendingum skal skila í skipulagsgátt í síðasta lagi þann 7. ágúst  2025.

Aðalskipulagsbreytingin er í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 en í 30. gr. laganna er kveðið á um kynningu lýsingar og tillögu á vinnslustigi.

Frétta og viðburðayfirlit