mobile navigation trigger mobile search trigger
03.03.2022

Fjölgreindaleikar í Grunnskóla Reyðarfjarðar á Öskudegi

Vegna ófærðar á Reyðarfirði og leiðinda veðurs var ákveðið að halda fjölgreindaleika í Grunnskóla Reyðarfjarðar á Öskudegi.  Nemendur komust því ekki um bæinn til að syngja fyrir sælgæti í fyrirtækjum en eigendur og forsvarsmenn stofnana og fyrirtækja brugðust vel við með því að senda krökkunum sælgætið í skólann. 

Fjölgreindaleikar í Grunnskóla Reyðarfjarðar á Öskudegi

Á fjölgreindaleikum er nemendum skipt upp í sextán hópa, þvert á árganga og taka eldri nemendur ábyrgð á þeim yngri. Dagurinn fer svo í að ferðast um skólann, með skipulögðum hætti, á tíu mínútna fresti og upplifa eitthvað nýtt viðfangsefni á þeim sextán stöðvum sem kennarar hafa útbúið fyrir nemendur. Í lok dvalar á hverri stöð fengu nemendur sælgæti frá fyrirtækjum og stofnunum í bænum. 

Myndir frá deginum.

Frétta og viðburðayfirlit