mobile navigation trigger mobile search trigger
17.06.2022

Franskar skútur á Fáskrúðsfirði

Skútur sem taka þátt í frönsku siglingakeppninni Vendée Arctique hafa nú leitað skjóls inn á Fáskrúðsfirði vegna veðurs. Skúturnar byrjuðu að týnast inn á Fáskrúðsfjörð í dag hefur smám saman fjölgað eftir því sem líður á daginn.

Franskar skútur á Fáskrúðsfirði
Einn af keppendunum á Fáskrúðsfirði í dag. Ljósmynd: Heimasíða keppningar: www.vendeearctique.org/

Alls eru skúturnar 24 sem lögðu af  stað frá Frakklandi sl. sunnudag og var ætlunin að sigla um 3500 sjómílna leið meðfram vesturströnd Írlands og þaðan norður fyrir Íslands. Í dag var síðan ákveðið vegna afar slæmrar veðurspár að senda alla keppendur í var á Fáskrúðsfirði á meðan veðrið gengur yfir í kvöld og á morgun. 

Frétta og viðburðayfirlit