mobile navigation trigger mobile search trigger
13.04.2023

Íbúafundur fyrir íbúa Fjarðabyggðar vegna stöðu mála í kjölfar ofanflóða og rýminga í Fjarðabyggð

Íbúafundur fyrir íbúa Fjarðabyggðar vegna stöðu mála í kjölfar ofanflóða og rýminga í Fjarðabyggð verður haldinn í Egilsbúð, Neskaupstað föstudaginn 14. apríl, klukkan 17:00. 

Tilgangur fundarins er að upplýsa íbúa Fjarðabyggðar um stöðu mála í kjölfar ofanflóða og rýminga í Fjarðabyggð 27. – 1. apríl sl.

Athygli er vakin að fundurinn verður einnig í streymi - Hægt er að nálgast streymið hér

Íbúar geta sent inn spurningar fyrir fundinn á netfangið fyrirspurnir@almannavarnir.is

Íbúafundur fyrir íbúa Fjarðabyggðar vegna stöðu mála í kjölfar ofanflóða og rýminga í Fjarðabyggð

Stutt innlegg frá eftirfarandi aðilum:

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar
  • Jón Björn Hákonarson, f.v. bæjarstjóri Fjarðabyggðar
  • Harpa Grímsdóttir, frá Veðurstofu Íslands
  • Magni Hreinn Jónsson, frá Veðurstofu Íslands
  • Kristín Martha Hákonardóttir, sérfræðingur í ofanflóðavörnum hjá Verkís
  • Hulda Ragnheiður Árnadóttir, frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands
  • Margrét María Sigurðardóttir , Lögreglustjóri á Austurlandi
  • Kristján Ólafur Guðnason, Yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Austurlandi
  • Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, fulltrúi þjónustumiðstöðvar Almannavarna í Egilsbúð

Að loknum stuttum erindum verður spurningum sem bárust fyrir fundinn svarað.

Öll velkomin!

Frétta og viðburðayfirlit