mobile navigation trigger mobile search trigger
27.06.2022

Innsævi er hafið!

Í síðustu viku hófst Innsævi, Menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar. Innsævi er tvíæringur sem Menningarstofa Fjarðabyggðar heldur utan um og skipuleggur. Hátíðin er nú haldin í annað sinn og fer hún fram dagana 23. júní til 24. júlí um allt sveitarfélagið.

Innsævi er hafið!

Dagskráin í ár er afar fjölbreytt og vonandi finna allir eitthvað við sitt hæfi, bæði íbúar Austfjarða sem og þeir sem heimsækja Fjarðabyggð í sumar. Á dagskrá Innsævis í ár má m.a. finna innsetningar, sviðsverk og gjörninga, hljóðlistaverk, fjölbreytta tónleika, ljósmyndasýningu, útilistaverk og barnasýningu.

Í vikunni verður dagskrá Innsævis dreift í öll heimili í Fjarðabyggð með Dagskrá vikunnar og við hvetjum íbúa til að kynna sér metnaðarfulla dagskrá hátíðarinnar og  sækja viðburði sem allir eru gjaldfrjálsir.

Einnig má fylgjast með dagskránni og óvæntum viðburðum á Facebook-síðu Innsævis, www.facebook.com/innsaevi og hjá Menningarstofu, https://www.facebook.com/menningarstofa

Hér má finna dagskrána á netinu: https://www.fjardabyggd.is/Media/innsaevi22-baeklingur-online.pdf

Frétta og viðburðayfirlit