mobile navigation trigger mobile search trigger
24.02.2023

Rostungur í heimsókn í Breiðdalsvík

Nú berast fréttir að rostungur hafi brugðið sér í heimsókn á bryggju í Breiðdalsvík. Dýralæknir hefur samkvæmt beiðni Matvælastofnunar farið og metið dýrið. Dýrið virðist ekki vera slasað en gæti verið aðeins meðtekið, en það getur verið erfitt að meta. Gæti líka verið að hvíla sig eftir langt ferðalag og átök.
Rostungur í heimsókn í Breiðdalsvík
Rostungur í makindum á Breiðdalsvík
Ráðleggingar frá Matvælastofnun lúta því að því að ekki undir neinum kringustæðum fara nær dýrinu en 20 metra og allra helst halda fjarlægð sem nemur 50-100 m. Öll nálgun nær en 50 m stressar dýrið og allt sem er nær en sem nemur 20 metrum stressar dýrið mjög mikið og getur haft verulega neikvæð áhrif á heilsu þess og líðan. Þegar dýrið er farið að hvæsa er það löngu orðið mjög stressað. Einnig er rétt að nefna að þó rostungar virðist svifasein dýr þá geta þeir hreyft sig hratt og valdið miklum skaða á fólki og dýrum með öflugum höggtönnum, ef þeim finnst þeim ógnað. Einnig geta sjávarspendýr eins og rostungar borið smitefni sem geta verið varasöm fyrir fólk.
Biðlar Matvælastofnun fólk um að sýna tillitssemi við dýrið og skynsemi m.t.t. eigin öryggis.
Fleiri myndir:
Rostungur í heimsókn í Breiðdalsvík
Rostungur í heimsókn í Breiðdalsvík

Frétta og viðburðayfirlit