mobile navigation trigger mobile search trigger
12.04.2022

Skapandi sumarstörf 2022

Fjarðabyggð leitar að ungu fólki sem fætt er á árunum 1997 til 2005 til að taka þátt í skapandi sumarstarfi Fjarðabyggðar í allt að níu vikur á tímabilinu 1. júní til 5. ágúst 2022.

Skapandi sumarstörf 2022

Langar þig að upplifa draumasumarið þitt í sumar? Hefur þú áhuga á að vinna í lifandi suðupotti, við líflegar uppákomur og læra nýja hluti? Ef svarið er já þá eru skapandi sumarstörf eitthvað fyrir þig!

Fjarðabyggð leitar að ungu fólki sem fætt er á árunum 1997 til 2005 til að taka þátt í skapandi sumarstarfi Fjarðabyggðar í allt að níu vikur á tímabilinu 1. júní til 5. ágúst 2022.

Skapandi sumarstörf eru hugsuð fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að efla listsköpun sína og um leið glæða sveitarfélagið lífi með listrænum og skapandi uppákomum. Skapandi sumarstörf eru fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á skapandi verkefnum og vill vinna við tónlist, leiklist/sviðslist, myndlist og gjörninga, kvikmyndagerð og ýmislegt annað sem tengist listum og menningu í Fjarðabyggð.

Starfið verður mótað að áhugasviði þátttakanda sem og af þeim verkefnum sem þarf að uppfylla eins og ákveðna skapandi þjónustu við samfélagið, til dæmis að koma fram við ýmis tilefni í byggðakjörnunum eftir því sem tími og aðstæður leyfa. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að opna á ný listform og kanna nýjar stefnur. Mikilvægt er að umsækjendur geti unnið sjálfstætt sem og í hóp undir leiðsögn frá verkefnastjóra.

Umsækjendur þurfa að skila inn kynningarbréfi um sig, áhugasvið sín sem og hugmyndum að verkefnum sem umsækjandi hefur áhuga á að vinna að í sumar. Við val á umsækjendum verður tekið tillit til reynslu umsækjenda, sýnileika og frumleika hugmynda, fjölbreytni, kynjahlutfalls og gæði umsókna umsækjenda.

Einstaklingar og smærri hópar er hvattir til að sækja um. Athugið að umsækjendur þurfa að eiga lögheimili í Fjarðabyggð.

Nánari upplýsingar veitir Menningarstofa Fjarðabyggðar í síma 470 9000 eða á póstfangið menningarstofa@fjardabyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2022.

Sótt er um starfið á ráðningarvef sveitarfélagsins.

Frétta og viðburðayfirlit